Óvænt fundust gamlar vísur
1991–1994 kenndi ég heimspeki og íslensku við Fjölbrautaskólann í Breiðholti. Þetta var góður tími: Ég öðlaðist mikilvæga reynslu sem kennari, kynntist skemmtilegu ungu fólki og góðum vinnufélögum. Á kaffistofunni var ekki töluð vitleysan, allavega ekki við það borð þar sem ég sat. Kollegi frá þessum tíma hafði samband af því hann hafði rekist á miða með nokkrum vísum sem fóru okkar á milli. Hér eru þær: Um Gunnar Eyjólfsson leikara sem kenndi við FB á þessum tíma og sat við borðið: Gamansamur Gunnar er, guminn brúnaþykki, ótrúlega upp með sér enda kaþólikki. Gunnari líkaði vísan ekkert sérstaklega og Eysteinn Björnsson orti í framhaldi af því: Skáldmæltur er Skúli Páls skammtar mönnum speki, vin sinn Gunnar hann til háls hefur atað bleki. Eysteinn var vanur að hafa vatnsglas við höndina. Þegar hann sagðist ætla í leyfi til að sinna ritstörfum var hann spurður á hverju hann ætlaði að lifa og hann sagðist ætla að lifa á loftinu: Vitringarnir vatn sér fá en væri ekki g...