Úr ævintýrinu um Turandot
Prinsessan Turandot hefur heitið að giftast engum nema þeim sem ráðið getur þrjár gátur hennar og biðlar eru miskunnarlaust drepnir ef þeim mistekst.
Prinsinn af Tartaríu einn ræður gáturnar. Hinsvegar gengst hann inn á að Turandot megi drepa hann ef hún getur upp á nafni hans fyrir sólarupprás. Annars á hún að efna heit sitt um að giftast honum. Hún fyrirskipar að allir borgarbúar skuli vaka til að komast að hvað hann heitir.
Um það syngur hann:
PRINSINN
Enginn sofi! Enginn sofi!
Ekki einu sinni þú, prinsessa,
í þínu kalda herbergi
horfirðu á stjörnurnar sem titra
af ást og von!
En leyndarmál mitt er læst í mér,
enginn mun vita nafn mitt.
Nei, nei við munn þinn mun ég segja það
þegar ljósið geislar
og koss minn mun rjúfa þögnina
sem gerir þig mína.
KÓR KVENNA
Enginn mun vita nafn hans
og við munum deyja.
PRINSINN
Hverf þú nótt,
víkið stjörnur!
Við sólarupprás mun ég sigra,
sigra, sigra!

Ummæli
Skrifa ummæli