Færslur

Bernskuminningar um pabba minn

1 Ég hef verið tólf ára þegar pabbi kenndi mér að smíða útvarp. Við sátum yfir hrúgu af litlum rafmagnshlutum: viðnámum, þéttum og transistorum. Hann kenndi mér að handleika lóðbolta, hvernig maður bræðir dropa af tini til að tengja á réttan stað. Hann útskýrði hvað viðnámin gera og hvað þéttar gera. Hann kenndi mér að lesa úr lituðu strikunum á viðnámunum. Hann sýndi mér hvernig stillanlegt viðnám virkar. Á endanum hlustuðum við á tónlist og nýjustu fréttir úr þessu litla tæki. 2 Ég er í Þjóðleikhúsinu í fyrsta skipti, líklega til að sjá Kardimommubæinn. Pabbi bendir upp og útskýrir að formin í loftinu eigi að minna á stuðlaberg; að höfundur hússins hafi viljað að það minnti á klett svo gestum leikhússins fyndist eins og þeir kæmu inn í álfaborg. Alltaf þegar ég kem í Þjóðleikhúsið horfi ég upp í loftið og þá rifjast þetta upp. 3 Við sitjum við útvarpstæki með stillt á stuttbylgju. Pabbi snýr takka og úr tækinu koma skruðningar og suð. Öðru hvoru heyrist ...

Úr ævintýrinu um Turandot

Prinsessan Turandot hefur heitið að giftast engum nema þeim sem ráðið getur þrjár gátur hennar og biðlar eru miskunnarlaust drepnir ef þeim mistekst. Prinsinn af Tartaríu einn ræður gáturnar. Hinsvegar gengst hann inn á að Turandot megi drepa hann ef hún getur upp á nafni hans fyrir sólarupprás. Annars á hún að efna heit sitt um að giftast honum. Hún fyrirskipar að allir borgarbúar skuli vaka til að komast að hvað hann heitir. Um það syngur hann: PRINSINN Enginn sofi! Enginn sofi! Ekki einu sinni þú, prinsessa, í þínu kalda herbergi horfirðu á stjörnurnar sem titra af ást og von! En leyndarmál mitt er læst í mér, enginn mun vita nafn mitt. Nei, nei við munn þinn mun ég segja það þegar ljósið geislar og koss minn mun rjúfa þögnina sem gerir þig mína. KÓR KVENNA Enginn mun vita nafn hans og við munum deyja. PRINSINN Hverf þú nótt, víkið stjörnur! Við sólarupprás mun ég sigra, sigra, sigra!

Heiðnu litlu fermingarbörnin

Eins og undanfarin ár kenni ég í námskeiðinu fyrir borgaralega fermingu. Með hverju árinu velja fleiri börn þennan kost. Nú í ár er það orðinn tíundi hluti árgangsins sem fermist borgaralega. Mitt hlutverk er að hitta tvo hópa vikulega og að fræða þau ögn um – og vekja til umhugsunar um – siðferði, gagnrýna hugsun og hvað skiptir máli í lífinu. Í dag hélt ég þessu áfram og kynnti þau fyrir Mannréttingayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Hún er auðvitað grundvallarplagg en samt lítils virði ef enginn les hana og leggur eitthvað á sig til að skilja hana. Markmið mitt í dag var að fá unglingana til að hugsa um nokkur grundvallarhugtök. Þar á meðal þessi: Virðing hverrar manneskju. Réttindi. Mannhelgi. Útlegð. Vanvirðandi refsing. Einkalíf.

Turninn minn

Stundum hef ég lýst fyrir vinum mínum að ég vildi búa í turni. Orðtakið um fílabeinsturn hafði sitt að segja. Helst sá ég fyrir mér vita. Viti lýsir skipum og vísar þeim hvert eigi að stefna. Tóbías í turninum, sem spáði fyrir um veður, hafði líka áhrif á mig. Einnig gæti ég nefnt stjörnufræðingana í Múmínálfunum sem fylgdust með halastjörnunni úr turni. Auk þess fann ég til skyldleika með hinum opineyga franska einfara Montaigne sem sat í turni umkringdur bókasafni sínu og skynjaði allar hræringar í sálarlífi samborgara sinna. Mér þótti turn viðeigand samastaður fyrir heimspeking. Svo flutti ég í íbúð á fjórðu hæð í blokk í Reykjavík. Hér hef ég allar bækur mínar, þar á meðal ritgerðasafn Montaignes. Ég sé til allra höfuðátta en horfi niður á hversdagslegt mannlíf (börn að koma í skóla, fólk að ganga út með hundinn). Út um eldhúsgluggann sé ég Esju. Af svölunum sé ég tunglið fara sinn mánaðarlega hring og á bak við raðast stjörnur í sín kunnuglegu merki. Íbúðin mín á fjórðu hæ...

Kvöldmatur á þriðja degi ársins

Stykki af saltfiski útvatnað í sólarhring Kartöflur Smjör Ólífuolía Einiber Tómatur Láta suðu koma upp í stórum potti, koma fisknum þar í og taka pottinn af hellunni. Eftir smá stund er hann mátulega soðinn. Sjóða kartöflur, flysja. Steyta einiber gróflega, bræða smjör og blanda saman. Tómatur skorinn í smáa bita og hitaður í blöndu af smjöri og ólífuolíu. Úr þessu verður ljúffengur og hollur matur fyrir janúarkvöld.