Færslur

Stígvélaði kötturinn

Mynd
 Þegar ég orti Rímur af stígvélakisu fannst mér nauðsynlegt að fara nákvæmlega eftir sögunni sem var fyrirmynd mín. Fljótlega komst ég að því að prentaðar útgáfur af sögunni eru oft styttar og endursagðar fyrir börn og því brá ég á það ráð að þýða hana úr frummálinu. Hér kemur þýðingin með myndum eftir Gustav Doré. Stígvélaði kötturinn úr Sögum gæsamömmu eftir  Charles Perrault [1] Einu sinni var malari sem átti ekki annað til að arfleiða syni sína þrjá af en mylluna sína, asna og kött. Skiptunum var snarlega lokið og hvorki kölluðu þeir til lögmann né skiptaráðanda því að kostnaðurinn við að borga þeim hefð fljótt étið upp föðurleifð þeirra. Hinn elsti erfði mylluna, sá næsti fékk asnann en sá yngsti fékk ekki neitt nema köttinn. Yngsti pilturinn var miður sín yfir fátæklegu hlutskipti sínu: „Bræður mínir“ sagði hann „geta unnið fyrir sér sómasamlega með því að leggja saman en ég hinsvegar, þegar ég hef étið köttinn og gert mér múffu úr skinninu af honum þá hlýt ég að drepast...

Hallgrímur Helgason og ég í München

Mynd
Um daginn las ég bókina Sjóveikur í München eftir Hallgrím Helgason. Ég hef ætlað mér að lesa hana frá því hún kom út fyrir nokkrum árum en ég er einn þeira sem hef átt erfitt með  hinar þykku skáldsögur Hallgríms vegna yfirflæðandi mælsku hans. Þessi bók fannst mér þó eiga erindi við mig því hún fjallar um ungan Íslending í München eins og ég var einu sinni.  Hallgrímur er ári eldri en ég og kom til München árið sem hann varð 22 ára en ég kom þangað þremur árum síðar, árið sem ég varð 24 ára. Ég kannast við umhverfið sem hann lýsir: göturnar sem hann nefnir, lestastöðvarnar, októberhátíðina og fleira. Nokkur atriði eru alveg eins í sögum okkar beggja. Eitt er að fyrstu vikurnar í München dvelur hann á stúdentagarði í Schwabing í herbergi sem hann fær lánað af Íslendingi. Þegar ég kom fyrst til München fékk ég inni í herbergi landa míns sem var ókominn þangað til ég fann mér annað húsnæði. Síðan leigir hann herbergi í úthverfi af konu sem vinnur hjá Siemens. Síðar í bókinni n...

Ólafur Kárason uppgötvar Númarímur

Mynd
  „Það var ekki fyr en hann fór að blaða í Númarímum, að hann byrjaði að efast um gildi sinnar eigin óskrifuðu bókar. Við kynnínguna af skáldskap Breiðfjörðs rann upp fyrir honum nýr dagur í andanum, bjartari en hinir fyrri. Hið klúsaða kenningaskrúð Jóhönnurauna og annara snildarverka Húsafells-Snorra, sem mest hafði verið að skapi Jóseps heitins, virtist skjótlega snautt og dapurt við samanburð hreinnar eddu Breiðfjörðs og hins ljósa söguefnis hans, en þó umfram alt þess heillandi túngutaks sem vekur í hjartanu ólæknandi kend um fegurð og sorg. Áður hafði hann haldið að öll skáld væru vegsamleg og að allur skálskapur væri einn og samur að verðleikum, svo fremi hann snerist um hetjudáðir yfirleitt, eða endurlausnarverk Jesú Krists sérstaklega, annaðhvort á nógu dýran eða nógu sanntrúaðan hátt. „Móðurjörð hvar maður fæðist“, – nú uppgötvar hann skyndilega að það er munur á skáldum. Og í hverju var þessi munur falinn? Einkum í því að önnur skáld virtust ekki hafa nema mjög óljóst hu...

Fagurfræði rímna

 Sigurður Breiðfjörð (1798–1846) setti stuttan formála fyrir Núma rímum (1835) þar sem hann gerði grein fyrir fagurfræði sinni. Þar segir hann:  „Eg hefi í Númarímum þessum viljað leitast við að umflýja það, sem mér helzt hefur þótt til lýta hingað til, svo vel á mínum eigin sem annara rímum.“ Hann telur upp lýti sem hann telur hafa verið á sínum eigin rímum og annarra sem hann vilji forðast. Þau eru: 1. „Ófimlegar Edduglósur“, það er að segja óskiljanlegar kenningar og ósmekklegar. Kenningar eru eitt helsta einkenni rímna. Þær eru svo mikilvægar að ég held því fram að kvæði sem engar kenningar hefur geti ekki talist ríma. Þær eru ættaðar úr dróttkvæðum en sérstaklega fóru rímnaskáldin eftir leiðbeiningum Snorra Sturlusonar í Skáldskaparmálum Snorra-Eddu. Leiðbeiningar Snorra eru opnar og gefa möguleika á endalausri nýsköpun. Á 19. öld var þessi nýsköpun komin út um víðan völl og stundum bara í óbeinu samhengi við leiðbeiningar Snorra. Þetta gat verið erfitt fyrir áheyrendur r...

Þekkingarfræðileg samkennd

Þegar maður uppgötvar eitthvað og langar svo mikið að segja öðrum frá og langar til að aðrir upplifi það sama – það er löngun sem ætti skilið að hafa sérstakt nafn. Hún gæti heitið þekkingarfræðileg samkennd eins og mér datt í hug í gær en það er líklega aðeins of klunnalegt heiti.  Eureka! Veistu hvað? Löngunin til að deila þekkingu

Augnablik undrunar: ormur í leðju

Mynd
Í gær bloggaði ég um það sem ég kallaði augnablik undrunar í kennslu. Augnablik eru hverful eins og þið vitið (eins og segir í ljóðinu: „Hér kvaddi lífið sér dyra en nú er það farið“). Þegar þau koma í kennslustoufunni er stundum enginn til frásagnar nema kennarinn í frímínútum á kaffistofunni. Samt fréttir kennarinn oft að nemendur hafi sagt frá slíkum augnablikum heima hjá sér og að þau hafi orðið umræðuefni á heimilum. Margt fullorðið fólk á fallegar minningar úr skólagöngu sinni um augnablik þegar eitthvað merkilegt, lærdómsríkt, undravert gerðist. Nú til dags hafa allir snjalltæki á lofti til að mynda hverja stund lífsins þannig að kannski safnast þessa dagana fleiri heimildir um þessi sérstöku augnablik. Einu sinni lánaðist mér að festa á myndskeið svona augnablik. Á þessum tíma kenndi ég á 9–12 ára börnum í Smáraskóla. Í náttúrufræðitímunum lásu þau dálítið um lífríkið í leirunni í Kópavogi og hvað þessi leira er eiginlega. Með því að bera saman flóðatöflur og stundatöfluna...

Augnablik undrunar í skólastofunni

Í kennslu koma augnablik sem kennarinn segir um eftir á: þetta er það sem gerir þetta starf þess virði að vera í því, þetta er það sem vegur upp á móti stressinu, lélegu kaupi og öllu því. Eftir svona augnablik kemur kennarinn brosandi út úr kennslustofunni og á kaffistofunni finnur hann fyrir knýjandi þörf til að segja samstarfsfólki hvað gerðist. Allt í einu gengur allt upp og meira en það: Eitthvað fer að gerast sem kennarinn hafði ekki skipulagt og alls ekki búist við og kannski eitthvað sem hann hafði ekki hugmynd um að væri hægt. Það sem gerist er að viðfangsefnið tekur völdin. Nemendurnir heillast. Allt í einu taka þeir að læra sjálfir, fara sjálfir að vinna, finna upp eigin leiðir til að leysa verkefni. Stundum er talað í endurmenntunarnámskeiðum fyrir kennara um áhuga og áhugahvöt, hvernig viðfangsefni í náminu þurfi að höfða til nemenda til að vekja áhuga þeirra. Þá er eins og kennarinn eigi að velja efni á þroskastigi níu ára barns til að geta höfðað til níu ára barns. H...